Blue North verkefnið

Credit: Marco Pizzolato

Um

Blue North er fyrsta íslenska verkefnið innan Copernicus Marine National Collaboration Programme (Lot 3) og hófst í júní 2025. Það er unnið af Mercator Ocean International en Háskóli Íslands leiðir verkefnið í samstarfi við Náttúrufræðistofnun og Íslenska sjávarklasann.

Markmið verkefnisins er að efla innlenda þekkingu á sjávargögnum, virkja notendur og styðja við innleiðingu stefnu Evrópusambandsins hér á landi. Helstu viðburðir og verkefni eru meðal annars: 

Credit: Marco Pizzolato

Samráðsfundur

Credit: ChatGPT

Alþjóðlegt málþing

Credit: Lilja Laufey Davíðsdóttir

Þjálfunarnámskeið

Credit: Benedek Regoczi

Sjávarhakkaþon 

Með þessum aðgerðum verður byggð upp færni, nýsköpun efld og aðgangur að sjávargögnum aukinn – til hagsbóta fyrir sjálfbæra nýtingu fiskistofna, eftirlit með strandsvæðum og stjórn hafsins. Blue North styrkir stöðu Íslands innan Copernicus-samstarfsins og styrkir það með íslensku fræðsluefni og dæmum úr raunveruleikanum um notkun sjávargagna.


Viðburðir framundan

Credit: Lilja Laufey Davíðsdóttir
ÞJÁLFUNARNÁMSKIÐ

Lýsing: Kynnt síðar

Tímasetning: Kynnt síðar

Staðsetning: Kynnt síðar

Credit: Benedek Regoczi
SJÁVARGAGNA-HAKKAÞON

Lýsing: Copernicus Ocean Hackathon er nýsköpunar- og lausnarmót þar sem fjögurra manna teymi nýta opin hafgögn frá Copernicus Marine til að þróa lausnir fyrir íslenskt sjávarumhverfi og bláa hagkerfið. Þátttakendur fá aðgang að vinnustofum, leiðsögn sérfræðinga og tengslamyndun ásamt því að keppa um peningaverðlaun að upphæð 100.000 kr. fyrir fyrsta sæti og 50.000 kr. fyrir annað sæti. 

Tímasetning: 16-18 óktober 2026

Staðsetning: Iceland Ocean Cluster


Eldri viðburður

Credit: Marco Pizzolato
Umræðufundur um notkun Hafþjónustu Copernicus

Lýsing: Fundur þar sem rætt verður um hafþjónustu Copernicus, sjávargögn, notkun þeirra og stefnu til framtíðar saman. 

Tímasetning: 19. Febrúar 2026 – kl 12:15 – 16:30

Staðsetning: Grandagarður 16, 101 Reykjavík, Ísland 

Engar áhyggjur þótt þú hafir misst af viðburðinum, hann var tekinn upp.


Samstarfsaðilar

Icelandic Ocean Cluster Logo

Styrktaraðilar