
Hvað er Copernicusaráætlunin
Copernicusaráætlun Evrópusambandsins veitir nákvæm og uppfærð gögn sem nýtast til vöktunar á yfirborði og umhverfi jarðar. Áætlunin nýtir net gervitungla og ýmissa annarra kerfa á jörðu niðri til þess að fylgjast með loftslagsbreytingum og ástandi lands, sjávar og lofts. Áætlunin styður við
sjálfbæra þróun ásamt því að auka almannaöryggi um alla Evrópu og á heimsvísu.
Vefsíða Copernicusáætlunarinnar
Ísland og Copernicusaráætlunin

CAMS NCP Ísland vinnur að því að bæta loftgæðamælingar og auka vitund á umhverfisáskorunum á Íslandi, til dæmis í tengslum við rykstorma og gosösku. Verkefnið samþættir CAMS gögn við staðbundnar mælingar til að veita innsýn í loftslag og heilsufarslegar áskoranir sem tengjast því.

Blue North er fyrsta íslenska verkefnið innan Copernicus Marine National Collaboration Programme (Lot 3) og hófst í júní 2025. Háskóli Íslands leiðir verkefnið í samstarfi við Náttúrufræðistofnun og Íslenska sjávarklasann. Markmið verkefnisins er að efla innlenda þekkingu á sjávargögnum, virkja notendur og styðja við innleiðingu stefnu Evrópusambandsins hér á landi.

Náttúrufræðistofnun tekur þátt í National Collaboration Programme (NCP) á vegum Copernicus Land Monitoring Service (CLMS) til að efla notkun CLMS-gagna á Íslandi. Verkefnið mun leggja áherslu á að auka vitund um þjónustuna, virkja innlenda notendur og þróa notkunartilvik sem eru sérstaklega sniðin að íslenskum aðstæðum.

Veðurstofa Íslands tekur þátt í National Collaboration Programme (NCP) á vegum Copernicus Climate Change Monitoring Service (C3S).

CORINE er Copernicus verkefni sem kortleggur yfirborðsgerðir og landnotkun í Evrópu en þær upplýsingar nýtast vel við gerð umhverfisáætlana. Ísland leggur til innlend gögn til að fylgjast með breytingum; bæði náttúrulegum-og manngerðum. Þessi gögn eru nauðsynleg fyrir sjálfbæra umhverfisstjórnun.

FPCUP, eða Framework Partnership Agreement on Copernicus User Uptake, var verkefni sem er fjármagnað af Evrópusambandinu og miðar að því að auka notkun Copernicusargagna og -þjónusta hér á landi. Verkefninu var einnig ætlað að vekja athygli á samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi sem hlýst af Copernicusaráætluninni og endadi í 2025.
Tækifæri

Uppgötvaðu hafið í kringum Ísland! Með gögnum Copernicus Marine færðu innsýn í hafstrauma, hitastig, ís og lífríki sem hjálpa okkur að skilja breytingar og vernda auðlindir hafsins.

Sjáðu Ísland úr lofti! Sjáðu breytingar og uppgötvaðu ný sjónarhorn með gagnasöfnum Copernicusar áætlunarinnar.
Finndu mynd dagsins hér.

Kynntu þér þjónustur Copernicus sem tengjast Íslandi og uppgötvaðu hvernig gervihnattagögn hjálpa okkur að skilja og vernda umhverfið, náttúruna og plánetuna okkar. Byrjaðu Copernicusarferðalagið þitt í dag!

Helsta verkfæri Copernicusaráætlunarinnar eru Sentinel gervitungamyndir sem veita okkur rauntímagögn um flóð, þurrka, elda og eldgos. Gögnin gera viðbragðsaðilum kleift að bregðast hratt við og skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir með því að afhenda nákvæmar og hagnýtar upplýsingar meðan á náttúruhamförum stendur.

Kynntu þér hvernig Copernicus er kynnt í gegnum FPCUP verkefnið. Það er virkt á Íslandi og um allan heim til að hjálpa notendum að byrja að nota gögn og þjónustu Copernicusaráætlunarinnar.

Mörg tækifæri eru í boði í gegnum Copernicus til að læra, þróast, fá stuðning og fjármögnun fyrir verkefni og hugmyndir.

CASSINI er verkefni Evrópusambandsins sem styður frumkvöðla, sprotafyrirtæki og lítil og meðalstór fyrirtæki í geimiðnaðinum, en gildistími verkefnisins er frá 2021til 2027. Verkefnið nær yfir öll svið geimáætlunar ESB og samanstendur af vaxtarsjóði uppá einn milljarð evra, hackathon viðburðum, verðlaunum, viðskiptahraðli og myndun tengsla.
Fréttir Ísland
- Copernicus EU Website migrationAðalvefur Copernicus, www.copernicus.eu, verður settur í varðveislu 25. júní 2026. Frá þeim degi verður notendum sem heimsækja vefinn sjálfkrafa vísað áfram á Copernicus-síður nýja EU Space-vefsins á https://eu-space.europa.eu/. Þessi breyting… Read more: Copernicus EU Website migration
- Sentinel 2A extended until end of 2026Framlenging Sentinel-2A leiðir til tíðari athugana yfir Íslandi Sentinel-2A-gervihnötturinn, elsti gervihnötturinn í Sentinel-2-stjörnumerkinu, mun halda áfram starfsemi til loka árs 2026. Þessi framlenging þýðir að Sentinel-2A mun starfa samhliða Sentinel-2B… Read more: Sentinel 2A extended until end of 2026
- Nordic cooperation on land cover and habitat mapping using earth observationNorrænn netviðburður um landgerð, landnotkun og vistgerðakortlagningu Þann 16. apríl 2026 tók Ísland þátt í skipulagningu norræns netviðburðar um landgerð, vistgerðakortlagningu, Copernicus Land og fjarkönnun jarðar. Viðburðurinn var skipulagður í… Read more: Nordic cooperation on land cover and habitat mapping using earth observation
- Iceland signed agreement for GOVSATCOM and IRIS2Ísland og Noregur hafa undirritað samning við Evrópusambandið um þátttöku í GOVSATCOM og áætluninni um örugga tengingu, IRIS². Samningurinn mun styrkja örugga gervihnattatengingu fyrir opinber yfirvöld, neyðarþjónustu, hættustjórnun, viðbrögð við… Read more: Iceland signed agreement for GOVSATCOM and IRIS2
- Iceland joins Phase II of the CLMS National Collaboration ProgrammeÍsland tekur þátt í öðrum áfanga National Collaboration Programme CLMS Í mars 2026 undirritaði Ísland viljayfirlýsingu um þátttöku í öðrum áfanga National Collaboration Programme (NCP) á vegum Copernicus Land Monitoring… Read more: Iceland joins Phase II of the CLMS National Collaboration Programme
Fréttir Copernicus & ESA
- Apply for the Space Debris Training Course
- Apply for the Access to Space Training Course
- Earth from Space: Batagaika Crater
- MTG-I2 embarks on journey to Europe’s Spaceport
- Hot surfaces during Europe’s heatwave ‘seen’ by Sentinel-3
- ESA Academy Student Associations Outreach Initiative
- Satellite teams wanted for Design Booster
- Earth from Space: Algerian arid landscape
- Insights into Earth’s molten outer core from space
- Da Vinci team puts satellite payloads to the test














